Leita í fréttum mbl.is

Hvað er að fólki ?

LögreglanHvað getur maður sagt þegar maður heyrir svona fréttir ?
Manni setur hljóðan og missir einhvern veginn trúna á umburðarlyndi fólksins, er hraðinn og jólastressið orðið svona mikið að fólk geti ekki unnt lögreglunni að vinna sína vinnu þegar jafn hörmulegt banaslys verður einsog á þessum stað ?

Það væri gaman að vita hjá þeim sem skömmuðust í lögregluna og þeir sem keyrðu beint í gegnum slysstaðinn hvað það var sem þau voru svona ægilega mikið að missa af ?  Var búðin þar sem þú gast keypt jólaseríuna með 40% afslætti að loka ?  Var sjónvarpsþáttur að byrja ?  Voru kannski félagarnir að hittast í smá jólateiti ?  Sá sem lést í þessu slysi fer aldrei að kaupa jólaseríur, horfir aldrei á sjónvarpið og fer aldrei í smá jólateiti.

Legg til að landsmenn nær og fjær dragi nú djúpt andann, jólaandann, hætti að agnúast yfir smámunum og taki á móti frið í hjarta og sálarró, þá verður þetta einhvern veginn allt miklu betra.

þangað til næst,


mbl.is Ökumenn ósáttir við að Vesturlandsvegi skyldi lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tölvunotkun

ComputerNú hefur því verið haldið fram að ég sé tölvufíkill, að ég noti tölvuna meira en góðu hófi gegnir.  Ekki nóg með að ég starfa við tölvur allan daginn heldur að ég geti ekki beðið eftir að komast í tölvuna mína þegar heim er komið.  Synir mínir tveir eru orðnir líklegir kandídatar til að feta í fótspor föður síns, sá yngri á þó enn langt í land, þökk sé móður hans.

Fyrir þá sem halda þessu fram verð ég því miður að játa að þeir hafa líklegast rétt fyrir sér.  Ótrúlegt hvað hægt er að eyða miklum tíma fyrir framan þetta rafmagnsgangverk, hvernig hægt er að nostra við að fínpússa minnið, samstyrkja (defragment) diskinn og lesa endalausar upplýsingar um fótboltann, svo ég tali nú ekki um bridge-ið. 
Konan hefur þó aldrei þurft að hringja á lögregluna, þótt hana hafi örugglega stundum langað til þess.

Þar sem opinberun mín til tölvufíknarinnar er orðin staðreynd, þá lýsi ég því hér með hátíðlega yfir í votta viðurvist að ég mun aðeins fara í tölvuna tvisvar á ári, annars vegar þegar forsetinn á afmæli og hinsvegar þegar hann á ekki afmæli.

 Þangað til næst


mbl.is Lögregla kölluð til vegna tölvunotkunar unglinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persónudýrkun

rockÉg er orðinn frægur !  Ég var að álpast niðrí útvarpssvið (hjá 365), þurfti að tala við Þráinn tæknitröll, þegar ég rakst á Toby úr Rock Star og hann þurfti að pissa og hvern spyr hann hvar klósettið sé ? Jú mig !  Hann heilsaði mér og allt, sagði "G'day mate".
Auðvitað sýndi ég honum hvar klósettið er staðsett, ekki vil ég hafa ástralska hlandbunu í FM stúdíóinu á samviskunni og þaðan af síður ástralska blöðrubólgu á Íslandi.  Ég gekk nú samt ekki alveg svo langt einsog í Notting Hill þegar ein persónan elti Juliu Roberts inná klósett.  Sé alveg fyrir mér forsíðuna á DV eða Hér og nú, mynd af mér þar sem ég bendi á klósettið sem Toby pissaði og ég benti honum á hvar væri. Fyrirsögnin væri svona "Íslendingur bjargar Toby frá blöðrubólgu" og "Rock Star tónleikunum bjargað, Toby gat pissað"

Minnir mig á eina góða sögu, þegar ég og Einar vinur minn fórum á Whitesnake tónleika, kíktum síðan á skemmtistað eftirá, kemur ekki ein vinkona Einars sigri hrósandi, rjóð í framan og blik í augum, lýsir yfir með þvílíku stolti "Hæ, þetta er rótari trommuleikarans í Whitesnake" og þarna stóð mullet-permanent hnakkinn við hliðiná henni einsog ílla gerður hlutur á meðan við Einar veltumst um úr hlátri, en hann hefur sjálfsagt fengið sitt.

Annars er persónudýrkun skrýtið fyrirbæri, hvernig fólk á öllum aldri algjörlega dýrkar ákveðnar fígúrúr, , þá sérstaklega  íþróttamenn og popptónlistarmenn.  Hve margir karlmenn eiga ekki íþróttatreyjur með "Gerrard" eða "Ronaldo" ritað aftaná treyjurnar. 
Milljónir manna eiga hluti tengda sínum uppáhalds tónlistarmönnum, áritaðar myndir, tónleika og ég veit ekki hvað.  Ég veit að ég er nú aðeins að kasta steinum úr glerhúsi, með uppá vegg hjá mér áritaða mynd af Bono sem ég keypti dýrum dómi, á yfir 40 plötur með U2, nokkra tónleika, fór í ógleymanlega tónleikaferð til Írlands og eitt fyrsta orðið sem ég kenndi syni mínum var einmitt Bono.

þangað til næst.


mbl.is Magni: „Þetta verður snarbrjálað"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

óþolandi auglýsingar

augspjald1Senn koma jólin......en fyrst auglýsingar.
Nú getur sjálfsagt markaðsmaðurinn og auglýsingamógullinn hann Egill bróðir minn frætt fáfróðan stóra bróðir sinn um það hvort léleg auglýsing sé betri en engin auglýsing.   Helgar tilgangurinn meðalið ?  Er undirmeðvitundin það sterk að léleg auglýsing hefur áhrif á hvort maður kaupir vöruna eða ekki ?

Þær eru mjög slæmar þessar erlendu auglýsingar sem búið er að döbba á íslensku afskaplega klúðurslega, einsog flest þvottaefna auglýsingarnar.

Allavega, þá eru nokkrar alveg sérlegar slæmar íslenskar auglýsingar sem eru við það að fá mann til að vilja taka upp bazookuna og skjóta auglýsingastofuna sem gerði viðkomandi auglýsingu.

5. KFC - ansi hreint kjánalegar auglýsingar sem gjörsamlega tröllriðu öllum auglýsingatímum í kringum Rockstar, ílla leiknar og ósannfærandi, en kjúllinn er góður en ég fæ mér aldrei Zingerborgara á sunnudögum.

4.  Vaka - Er í gangi í útvarpinu þessa dagna, búið að taka Bí, bí og blaka og breyta því í Bí bí og vaka, algjör vibbi og hreinlega kjánalegur.  Smá fyndni í lokin eru þó örlítil sárabót fyrir glataða auglýsingu.

3.  Jói Fel - Held að ég fái sjaldan eins mikinn kjánahroll og þegar maður sér Jóa Fel auglýsa sjálfan sig.  Eitthvað svo glatað að sjá glottið á honum og svipinn sem sýnir að maðurinn heldur að hann sé Guð almáttugur.

2.  Ingvar Helgason.  Alger horbjóður, ætti að varða við lög að gera svona leiðinlegar auglýsingar.  Sá sem samdi þetta hefur verið á þungum lyfjum og sá sem samþykkti þetta hjá IH er sjálfsagt atvinnulaus í dag.  Ekki nóg með að taka hundleiðinlegt jólalag, heldur gerðu þeir það enn leiðinlegra, þegar þessi auglýsing kemur þá er skipt um stöð.

1.  MS - Muu muu mundu eftir mjólkinni.  Held að Fíknó ætti að leyta af ofskynjunarlyfjum uppá Bitruhálsi, þvílík hörmung.  Ætti að taka þessa auglýsingu og láta hana rúlla uppá Litla Hrauni í einangrunarklefanum, það er ef Genfarsáttmálinn myndi leyfa það.  Myndi nota djús á kornflexið mitt ef það væri ekki drullu vont.

Þangað til  næst.


mbl.is Jólaverslunin formlega hafin í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítin samtöl

1422588Ég hef unnið við tölvur í 15 ár og fengið mörg skrítin samtöl og beiðnir um aðstoð.  Hér koma nokkur dæmi sem eru mér hvað minnisstæðast:

Fékk símtal frá konu sem var í öngum sínum, ".... skjárinn krumpaðist saman og er í einu horninu....", þá hafði eitt forritið mínimæsast (vantar góða íslenskt orð) og var á task barnum.

Var heima hjá forstjóranum að gera við tölvuna hans, hann ekki heima en mamma hans var þarna að passa börnin, þegar ég var búinn að laga tölvuna hans kallar hún á mig inní eldhús, "Það er svo mikið suð í ísskápnum, geturðu lagað það ?", ég reyndi að útskýra fyrir henni að ég væri bara í tölvunum, myndi frekar kalla á sérfræðinga á sviði eldhústækja, til dæmis Rafha.  Gömlu konunni fannst þetta frekar billegt hjá mér.

Var með einn í símanum frá Sauðárkróki hátt í 45 mínútur að láta hann copera skjöl á milli deilda, eftir að hafa reynt milljón aðferðir við að copera, komst ég að því að hann skrifaði copy alltaf kopí, síðan hefi ég alltaf stafað fyrir menn aðgerðirnar.

Þessi toppar nú líklega allt.
Maður hringir og spyr "Hvernig geri ég öfugt pé?"
"Öfugt pé ? Skil þig ekki"
svara ég,
"Já, ég er með orð hérna sem ég þarf að skrifa og þar er öfugt pé" segir maðurinn pirraður
"Tja, ég veit ekkert um öfugt pé, hvaða orð er þetta ?" spyr ég og skil hvorki upp né niður
"Sko, fyrst kemur öfugt pé og svo kemur uestion" svarar hann og verður enn meira pirraður yfir fávisku minni.
"öööö ertu að meina kú, sem er við hliðiná tvövfalda vaffinu ?" spyr ég og er nánast að springa úr hlátri. 
"hmmm, já þetta er komið takk" segir maðurinn snubbótt og skellir á.
Ég var lengi að ná mér eftir hláturskastið sem ég fékk.

Þangað til næst,


mbl.is Tíu ótrúlegustu tölvusögurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænu bauna drykkur

Untitled-1Djö.... hafa ekki fattað þessa snild, ég leyfi mér að segja gargandi snilld.  Gæti tekið nokkrar Ora baunadósir og sturtað safanum, sem venjulega fer í vaskinn, oní flöskur og tappað á.  Þar sem þetta yrði örugglega svo mikið succsess þá hefði verið hægt að auka við vöruúrvalið og koma með gulu bauna gos og bakaðar bauna gos.

Svona er maður ófrjór og vitlaus, að láta sér ekki detta þessi snilld í hug.  Er nokkuð viss um að sá sem sér um að koma nýjum vörum í framleiðslu hjá Jones Soda sé íslenskur, eða sá hinn sami og bjó til og framleiddi Súkkó hérna um árið, sem reyndar kolféll sem er óskiljanlegt, hver vill ekki gosdrykk með súkkulaði bragði ?

Gaman annars að rifja upp nokkrar gostegundir sem ekki hafa meikað það, sem ég man í fljótu bragði eru: Sukkó, RC-Kóla, Cherry Cola, Ískóla, Miranda, Spur, Sinalco, Póló, Vanilla coke (talandi um viðbjóð) og örugglega fullt fullt af öðrum drykkjum, athugasemdir vel þegnar.

þangað til næst,


mbl.is Drykkur með bragði af grænum baunum brátt framleiddur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarleg skrif

Mikið finnst mér skrifin hjá þeim annars frábæra skúbb-bloggara Denna, um kaupin á Helga Sigurssyni, lýsa mikilli beiskju og biturð í garð Valsmanna.  Jú jú víst segir valur_rvk2sagan að um stórar fjárhæðir sé að ræða fyrir leikmann yfir þrítugt og það má endalaust karpa um hvenær borgað er of mikið eða of lítið.  En samt finnst mér umræðan um hvaðan peningarnir séu komnir vera skot langt yfir markið.
Nú veit ég ekkert hvort Engilbert, sá sem er sagður hafa fjármagnað kaupin á Helga sé glæpamaður eða ekki, enda er mér alveg nokk sama, svo framarlega að ekki sé verið að brjóta lög í kringum þessi kaup.  Það er líka endalaust hægt að kryfja hvaðan peningarnir séu komnir og hvort þeir séu ílla fengnir eða ekki.
Denni skrifaði nú einu sinni á síðunni sinni þar sem hann sló upp þeirri spurningi hvort Abramovich væri að fara að kaupa Fram þegar hann kom hingað í opinbera heimsókn, að vísu setti Denni þetta fram í gríni en ég er nokkuð viss um að honum sem öðrum Frömmurum myndi ekkert leiðast að fá fjármagn Abramovich í Fram.
Á sínum tíma vann Denni á Stöð 2 á meðan hún var í eigu Jóns Ólafssonar, en einsog allir vita þá hefur sú saga verið ansi lífseig að Jón hafi fjármagnað veldi sitt með ílla fengnu fé, ekki virtist það hindra Denna að taka við laununum sínum.
Hvað um það, ég skil vel gremju Frammara að missa sinn besta mann til erkióvinarins en menn ættu nú samt aðeins að anda með nefinu.

þangað til næst
zpider

p.s. það skal tekið fram að síðuskrifari er Valsari og litast hans skrif algjörlega þess vegna.


Fyrirsagnir

h_xxx_blog_untitled-1.jpgNúna má sjá auglýsingar víða þar sem hvatt er til nota ekki nagladekk, sem er gott og vel.  Slagorðið er „Minnkum svifryk“ og ég spyr er rétt að minnka svifrykin ? Er ekki betra að fækka þeim ?  Fer það kannski betur með öndunarfærin okkar að anda að okkur minni einingum af svifryki.  Nú er ég engin íslenskufræðingur, langt frá því, en eitthvað finnst mér þetta ekki vera rétt.
Ein fyndasta auglýsingin var þegar var verið að auglýsa einhverja samkeppni, og þar kom þessi ódauðlega klausa „.... ekki verður lógóið notað nema að höfðu samræði við höfund.... “

Annars eru fyrirsagnir oft á tíðum ansi skrautlegar,  frægust er nú sjálfsagt „Skreið til Nígeríu fyrir milljón“ man líka eftir einni í Fjarðarpóstinum „Einn fimmti Hafnfirðinga ekki ruglaðir“ og var þá vísað til þess að um 20% Hafnfirðinga ættu myndlykil.

DV voru nú líka ansi lunknir í að koma með undarlegar fyrirsagnir, a la Eiríkur Jóns.  Ef einhver man einhverja skondna þá endilega að koma með hana í athugasemdunum.

Bresku blöðin eru snillingar í að afbaka texta og gera úr honum fyrirsagnir, dæmi eru t.d.
„I Can Raise The Ti-toon-ic Says Glenn Roeder“ - The People
„Sparky Hope For Beckburn Coup“ - The Sun

Þangað til næst,
zpiderr


 

zpiderr
Kristinn Þór, nörd, faðir, eiginmaður, íþróttaáhugamaður en þó ekki endilega í þessari röð

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband